Velkomin á vefsíðu mína!

Gjörið svo vel að skoða efni það sem hér er að finna. Lítið á flokka hér að ofan.

Nýtt:

Mannanafnaskrá litla gistihússins að Hellu í Vatnsfirði. Þar eru meira en 240 nöfn. Er þín getið þar?  http://www.marvidar.com/jon_j_vidis/brandagil-hella-og-vidir/

Saga Guðnýjar Benediktsdóttur í Garði nýuppfærð: http://www.marvidar.com/wp-content/uploads/Hvassvidrissagan_og_Gudny_i_Gardi_og_Skafti.docx  Þar við hliðina á er nýlega innfærð afmælisgrein eftir Þórgný Guðmundsson frá Sandi um Skafta Jónsson, son Jóns Jóakimssonar á Þverá.

Ný er einnig skemmtileg og fróðleg grein Jóns Hálfdanarsonar um elstu steinhús hér á landi, með Þverárkirkju sem viðmið. Jón tengir sögu seinhúsa við ævi sína og forfeðra sinna.  http://www.marvidar.com/wp-content/uploads/Steinhus_Tengdafedra_JH_2012.pdf

Hér eru nokkur sýnishorn:

Vissir þú að Þverárbærinn er á óskalista Sameinuðu þjóðanna um að komast á heimsminjaskrá? Aðeins tveir íslenskir staðir/verkefni eru fyrir á þeirri skrá. Sjá greinargerð sem UNESCO lét gera um verkefnið Icelandic Turf Houses  http://www.marvidar.com/um_mig/vinafelag_thverarkirkju/

 Fyrir skyldfólk mitt í föðurætt, nefnilega Þykkbæinga: Frænka okkar, Ragnheiður Jónsdóttir, hefur komið sér upp vefnum http://kroktun.com/, en þar hefur hún safnað saman miklu magni mynda og hreyfimynda. Sendið henni skeyti á spord@simnet.is og fáið hjá henni aðgangsorð.

For our Americans: Vidis’ family tree is here:  http://www.marvidar.com/nidjatolin/nidjatal_jons_og_herdisar/

Gestabók Brandagils er nú (des. 2011) öll í einu pdf-skjali undir nafni Jóns J. Víðis. Sjá undirfyrirsögnina Brandagil og Víðirhttp://www.marvidar.com/jon_j_vidis/brandagil-og-vidir/

Joe E er fluttur til Los Angeles. Þar býr fyrir föðurbróðir hans, Bjarni Örn Þórisson. Sjá hér bréf sem hann sendi Þorvaldi S. Þorvaldssyni í ág. 2011: http://www.marvidar.com/wp-content/uploads/JoeE_og_Thorvaldur_agust_2011_One1.docx

Ertu búin(n) að lesa greinargerð mína um Þverá í Laxárdal og möguleika þá sem staðurinn býður uppá í framtíðinni? Uppfært 1. des. 2011. Sjá: http://www.marvidar.com/um_mig/vinafelag_thverarkirkju/

Hefurðu lesið grein Gunnars Hall (sonar Hrafnkels og Guðrúnar) til frændfólksins í Los Angeles og Las Vegas? Sjá:  http://www.marvidar.com/wp-content/uploads/Amerikuferdir_Gunnars_Hrafns_Hall_One.docx

Brennisóley við Víði í Mýrdal

Nokkrir einstaklingar voru beðnir um að velja sér þjóðarblóm og birti Mbl. viðtöl og myndir. Þjóðin fékk að kjósa, og þrengja þannig hópinn, en nefnd valdi endanlegt blóm, og aldrei var sagt frá því hversu mörg atkvæði hvert blóm fékk. Nefndin valdi holtaslóley. Brennisóley er mitt þjóðarblóm, engu að síður, og ég talaði hennar máli. Sóleyn á myndinni stóð við Víði í Mýrdal.

“Brennisóleyn vex gjarnan nærri mannabústöðum.  Það finnst mér svolítið djarft af henni.  Óhrædd býður hún okkur birginn, þótt við séum ekki alltaf ýkja nærgætin í umgengni okkar við náttúruna.  Fyrir vikið ber ég mikla virðingu fyrir brennisóleynni og geri að tillögu minni að hún verði þjóðarblóm Íslands.  Stundum þurfum við þó að setja henni mörk, eins og öllu því sem okkur þykir vænt um og viljum að vel grói” segir Már Viðar Másson sálfræðingur.

“Ég tók snemma eftir því á ferðum mínum um landið hvernig brennisóleyn gyllir umhverfi mannanna.  Og ég tengi fallega gula litinn hennar við þetta sambýli – fólk, land og sóley.  Þegar ég heyrði fyrst Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum þótti mér vel til fundið að líkja landinu við sóleyna.  Ég hef tekið eftir því að sólin hér er gulari en gerist sunnar á hnettinum.  Þetta stafar líklega af tærara lofti hér norðurfrá.  Og litur sólarinnar okkar er sá sami og litur sóleyjarinnar.  Og gljáinn er sá sami.”  [2004]

- O -

M.a. hér má fá ókeypis nýjasta Adobe Reader (X): http://www.adobe.com/uk/products/reader.html

- O -

Ég set sumar myndir mínar á flickr http://www.flickr.com/photos/marvidar/sets/

- O -

Frændi Þveræinga, Símon H. Sverrisson frá Laugum, rekur þingeyskan myndavef. Þar eru m.a. myndir af Þveræingum og Víðisum. Sjá: http://www.myndiraldanna.com/

- O -

Styðjið Wikipedia! Sjá: https://wikimediafoundation.org/wiki/Home

- O -

Þjóð, tunga, land og trú

Comments are closed.